7.3.2008 | 21:34
Ef þetta er rétt hjá þér - þá ertu fífl!
Horfði á Gettu Betur og sá minn gamla skóla vinna.
Það er ótrúlegt heyra alltaf aftur og aftur sömu taktana hjá Sigmar. Menn að giska út í loftið og hann grípur þetta upp og kemur með þessa ótrúlega óspennandi setningu á kolröngum tíma. Sum gisk voru svo langt út í loftið eins og hátíðnihljóð, sem var öllum ljóst að var ekki svarið.
Hitt var alveg óþolandi leiðinlegt hjá liðunum að ýta á bjölluna og standa svo á gati í mínútu. Það á bara að taka svarréttin af liðunum, þegar þau taka svona langan tíma í þetta.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:48 | Facebook
Athugasemdir
Sammála síðasta ræumanni. Þetta er líka ofnotað hjá honum "ef þetta er rétt svar...."
Landfari, 8.3.2008 kl. 01:05
" Ef þetta er rétt hjá þér" þá er Sigmar leiðinlegur. Sammála það fór hreinlega í taugarnar á mér í gærkvöldi að liðin skyldu hvað eftir annað ýta á bjölluna án þess að hafa hugmynd um svarið. það á að taka af þeim svarréttin ef þau koma ekki með svarið um leið og ýtt er á bjöluna."
Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 8.3.2008 kl. 12:52
Alveg sammála þér, Tómas. Stjórnanda ber að sjálfsögðu að taka svarréttinn af liðinu þegar það er farið syndga svona upp á umhugsunartímann. Það virðist reyndar vera meðvituð og þaulhugsuð aðferð hjá MR að kaupa sér margföldun á umhugsunartímanum á þennan hátt.
Emil Örn Kristjánsson, 11.3.2008 kl. 13:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.