A3 - Svo miklu betra

Það er nú ótrúlegt andleysið hjá þessum nýju fyrirtækjum.  Hvað er málið með skrifstofudeild Odda, núna er þetta A4.  Það þurfti að segja mér þetta nokkrum sinnum áður en ég fattaði hvaða tenging er þarna að baki.  Á undan voru þetta bara bókstafur og tölustafur á stangli.  Svona N1 bara en verra.

Er ekki málið að stofan skrifstofu fyrirtæki og kallað það A3 og auglýsa stærri og betri?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Þetta er svo halló!

Í gamla daga var það Group, núna er það bókstafur og tölstafur ...... óteljandi möguleikar í því.

Abcdefghijklmnopqrtsyv ......

12345678910111213141516171819 .......

Eva Þorsteinsdóttir, 3.10.2007 kl. 15:47

2 Smámynd: TómasHa

Já, við eigum eftir að sjá fullt af svona fyrirtækjum. B2 er greinilega langt á undan sinni samtíð.

TómasHa, 3.10.2007 kl. 16:01

3 Smámynd: Ragnar F. Valsson

Ég vil sjá miklu fleiri fyrirtæki sem eru skýrð eftir reitum í Excel töflureikni.

Ragnar F. Valsson, 3.10.2007 kl. 17:13

4 Smámynd: Sigurlín Margrét Sigurðardóttir

Já, þetta er orðið ansi róbótalegt og þjónustan eftir því....

Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, 3.10.2007 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband