Deiglan.com 10 ára

Hið frábæra vefrit Deiglan.com er orðið 10 ára.   Vefritið er þar með elstu vefritunum landsins og hefur lifað af fjöldan af pólitískum vefritum, sem hafa komið og farið án þess að mikið sitji eftir.

Þegar deiglan ákvað fyrir nokkrum árum að birta 2 pistla á dag, voru ýmsir sem brostu og sögðu það ómöglegt verk.  Það hefur að mestu gengið eftir, þótt einstaka pistlahöfundar hafi ekki staðið sig og ekki skilað. 

Þeir breytingar sem urðu í fyrra urðu til mikilla bóta, þá var flokkum breytt og leiðara bætt við.  Þetta hefur gefið góða raun finnst mér.

Deiglan er klárlega í rúntinum hjá mér á hverjum degi. 


Öryrkjablogg

Ég hef ekki lesið mikið af svokölluðum örykjarbloggum eins og Fröken M.  Hún bloggar hins vegar um þetta.

Dómurinn falinn

Örlögin hafa talað, meirihlutinn mun ekki endast út árið. Þetta segir Hermundar Rósinkranz, talnaspekingur. Hann hefur dregið út spil fyrir þá félaga, Villa og Ólaf F.

Ég get að sjálfsögðu ekki annað en mótmælt hugmyndum Hermundar, um að senda eigi Villa á Ræðunámskeið hjá Dale Carnegie. Að sjálfsögðu á hann að skella sér á ræðunámskeið hjá JCI :) Ekki að ég hafði séð sérstaka þörf hjá honum til þess að fara á ræðunámskeið, það eru ansi margir aðrir sem væru ofar á þeim lista.

Annars virðast spilin segja ýmislegt, meðal annars virðist vera hægt að lesa um andlega heilsu Ólafs F í spilunum.

Greinin á Vísi.is

Hvar verður þú á morgunn?

Ég fíla framadaga, þegar ég var á sínum tíma í háskólanum fór ég eins og aðrir á framadaga og missti mig í fjöldanum og dreifði umsóknum eins og aðrir. Þetta er mjög skemmtilegur vettvangur fyrir nemendur og fyrirtæki til að hittast og kynnast.

Nú verður þetta í Háskólabíó, sem ég held að sé besti staðurinn til þess að halda þetta, en undanfarið hefur þetta verðið á Hótel Sögu. Fyrir nokkrum árum var þetta í Valsheimilinu, vegna deilna á milli skóla. Mönnum þótti þá sem hlutdeild Háskólans væri of mikil með því að halda þetta á háskólasvæðinu. Háskólinn fór af stað með eigin útgáfu sem var haldinn í Aðalbyggingunni, en þessi skipting gerði það að verkum að enginn fékk neitt úr þessu.

Það að þetta sé nú komið aftur í Háskólabíó, gerir það að verkum að von er á mun betri mætingu en verið hefur.

Aisec sem halda framadaga, eru systrasamtök JCI, og því hefur JCI tekið þátt í starfinu. Mér skilst að nokkrir félagar JCI Esju ætli að mæta og vera sýnilegur á framadögum. Þetta er alltaf góð kynning fyrir félagið.


Gæti endað illa

Ég heyrði af þessu ótrúlega máli í gær. Maður var eiginlega bit þegar menn hugsa svona. 

Hann var líklega drukkinn (var rétt undir mörkum en mældur of seint), hann á að hafa keyrt 170 km/klst þar sem 90 km/klst var hámarkshraði og svo fer hann í mál við fjölskyldu fórnarlambsins.

Af fréttum hér heima í gær eru umferðaryfirvöld að íhuga að fara í annað mál við hann, þar sem það verður farið betur í þetta og hann kærður fyrir manndráp af gáleysi. Þessi græðgi hans gæti því kostað að hann eigi eftir að sitja inni eftir allt saman verði hann fundinn sekur. 


mbl.is Ökumaður krefur fjölskyldu látins reiðhjólamanns um bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýju fötin keisarans

Í gær var ég að kenna á ræðunámskeið og lenti í einum besta spuna sem ég hef upplifað.

Frekar á Esjublogginu.


Ótrúleg póstþjónusta

Maður á eiginlega ekki orð yfir póstinum. Ég sendi pakka með þeim, merktum á þremur stöðum, hins vegar var ég merktur á einum stað.

Fyrst fékk ég pakkann til baka á minn vinustað, eftir að ég hafi bent á þetta og fengið afsökun fékk ég pakkan heim til mín! Maður á eiginlega ekki orð yfir svona vinnubrögðum. Það hefði átt hverjum læsum einstakling að vera ljóst hvert pakkinn var að fara af þeim 3 merkingum sem voru á honum. Fyrir utan að við mitt nafn stóð: sendandi. Svona svo þeir gætu skilað pakkanum viðtakandi myndi ekki finnast.

FME stoppar samruna Kaupþings og NIBC

Orðið hefur skúbbað því að Fjármálaeftirlitið muni stöðva samruna Kaupþings og NIBC.

Áhugamenn um verðbréf fagna þessu væntanlega, sérstaklega ef skuldatrygginvarálagið mun minnka í kjölfarið.

Eftir mun væntanlega standa hver skúbbaði þessu. Það er alvegarlegt mál ef það er verið að skúbba svona hlutum áður en Kaupþingi hefur verið gert grein fyrir þessu.

Klappa þegar Svavar er búinn

Guðmundur Magnússon skrifar skemmtilega grein frá atburðum sem áttu sér stað árið 1969, þegar vinstrimenn mættu á pallaborgarstjórna.

Umfjöllunin er í mörgu keimlik því sem er í gangi í dag á alla kannta.

Kannski er munurinn sá að menn voru ekkert að hafa fyrir því að láta miða ganga núna.


Britney 120 milljóna dala virði á ári?

Nokkuð áhugaverð grein um að Britney sé 120 milljóna dala virði á ári.

Maður veit eiginlega ekki hvort þetta sé mikið eða lítið, sérstaklega þegar hún virðist alveg búin að missa það og erfitt að sjá að það sé nokkuð til hjá henni sem heitir ferill.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband