Kosið í Hollandi

Fékk að njóta þess að verða vitni af kosningum í Hollandi í gær. Það var verið að kjósa í svæðiskosningum. Ég hafði mjög gaman af því að fylgjast með þessu. Alltaf gaman af fylgjast með kosningunum.

Hvað gerir stjórnarandstaðan?

Nú verður fróðlegt að sjá viðbrögðin frá stjórnarandstöðinni, eftir að þeir lýstu yfir vilja til að styðja þetta mál.

Ég geri reyndar ekki ráð fyrir að þeir muni standa við stóru orðin, væntanlega finna þeir einhvern tæknigalla eða eitthvað atriði í þessu máli sem þeir treysti sér ekki til að styðja.
mbl.is Þjóðareign í stað sameignar þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður af framboði?

Ég velti fyrir mér hvort það verði af framboði hins hópsins heldur. Ég efast um að það náist, menn hafa nú rætt um þetta í marga mánuði án þess að nokkuð virðist hafa gerst.

Ef af verður spái ég þessu framboði ekki mikilli kosningu, þetta virðast vera sjálskipaðir postular eldri borgara, en virðast ekki ná að vinna með öðrum eins og þessu framboði frekar en "hinum arminum" sem upphaflega stóð að framboðinu.
mbl.is Hætt við annað framboð eldri borgara og öryrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er málið?

Auðvitað geta hlutir horfið en ef þetta er svona mikið vandamál afhverju bregst framleiðandinn við? Er ekki verið að flytja þessa síma á aðra staði en til Íslands?  Er þessum símum ekki dreift í gegnum dreifikerfi í vestur Evrópu? Hvaða símar eru svo framleiddir í Evrópu, ég hef ekki séð síma sem er framleiddur þar.  

Ég skil ekki að þetta sé stórt vandamál, menn tryggja sendingarnar einfaldlega og fá þetta frá tryggingunum. 

 

 


mbl.is Eftirsóttir farsímar hverfa á leið til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Netvistun kynnir sig

Þeir mega eiga það hjá netvistun að þeir eru góðir að kynna sig. Eftir að hafa skráð nokkuð mörg lén eins og RÚV.is, man ég ekki betur en þeir hafi ætlað að gefa þessi lén eftir. Nú virðast þeir hafa dottið í lukkupottinn aftur, og ná að kynna sig enn eina ferðina.

Ég skil ekki afhverju þeir kynna ekki nýju vöruna sína lén.is.
mbl.is Netvistun á „Ísland“ en forsætisráðuneytið „Island“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farinn í frí eða þannig

Þetta er skrifað á Keflavíkurflugvelli en ég er á leiðinni til Amsterdam í nokkra daga.  Við sjáum til hvað mér gengur að blogga á meðan.


West Ham er djók

Það er nú meira hvað menn eru seinheppnir þegar þeir ákveða að kaupa lið.

Það var alltaf sagt Stoke er Joke, er ekki spurning að fara að færa þetta yfir á West ham?
mbl.is Dökkt útlit hjá West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugaverð grein

Finnst greinin hennar Hafrúnar Kristjánsdóttur mjög áhugaverð.  Mæli með henni.

http://habbakriss.blog.is/blog/habbakriss/entry/137994/  

já og þessi:

http://don.blog.is/blog/don/entry/138086/ 


Reyndi að hengja sig?

Þessi frétt segir að hún hafi gert tilraun til að hengja sig!

Staff at the Promises clinic, where Britney Spears checked herself into last month, has been put on a ‘suicide watch’, after the singer reportedly tried to hang herself with a bed sheet.

Þarna kemur líka fram að hún hafir róast mikið við að tala við Federline og hún hafi verið að hugsa um að trúlofast honum aftur.
mbl.is Britney og Federline saman á ný?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítil vorkun

Það verður að segjast að þetta fólk fær litla vorkun, það var búið að bjóða því nýtt hús og það hafði ekkert með að gera að vera í þessu. Þau höfnuðu öllu sem þeim var boðið og fór sem fór.

Þó svo eigendur húsins rífi húsið núna, hefði maður haldið að þeir geymi lóðina í smátíma svo menn jafni sig.
mbl.is Byrjað að rífa Ungdomshuset
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband