Hlegið að umhverfissinum

„Þeir hlæja að þessu bara,“ segir Sigurður aðspurður um viðbrögð ökumanna.
Ætli þeir hlæji ekki vegna þess að þetta skiptir eiginlega engu máli.  Álið kemur ekki eða fer um þennan veg, ekki fer rafmangnið um þenna veg.  Þannig að þetta skiptir eiginlega engu máli, og ekki furða að bílstjórar hlæi bara þegar þeir sjá þessa menn. 
mbl.is Umhverfisverndarsinnar loka veginum upp á Grundartanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið rosalega sem þetta ,, pakk " fer í taugarnar á mér, sérstaklega þessi harðfullorðni hjúkrunarfræðingur sem kallaður er Siggi pönk og hagar sér alltaf eins og óþroskaður unglingur.

Stefán

Stefán (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 16:29

2 Smámynd: Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag

Það er alveg merkilegt hvað þetta lið þarf alltaf að vera athyglissjúkt... held að það sé eina sem knýr það áfram.. vera nógu flippað til að komast í fréttirnar ... svona eins og óþroskaðir unglingar gera

Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag, 19.7.2007 kl. 08:33

3 Smámynd: Haukur Viðar

Það sem fer aðallega í taugarnar á fólki varðandi Sigga pönk er það að hann er ekki eins og 99% fólks á hans aldri. Það er í eðli mannsins að dæma hluti/fólk sem er öðruvísi en það sjálft. Því er skiljanlegt að fólk hrauni yfir hann.

Þýðir það að hann hagi sér eins og óþroskaður unglingur? Bara þó hann kjósi að haga lífi sínu öðruvísi en þú, og leggja áherslu á aðra hluti en þá sem þér finnst mikilvægir? 

Haukur Viðar, 19.7.2007 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband